Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings
Hinn 7. febrúar 2025, var í menningar- og viðskiptaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Ráðuneytinu barst erindi, [A], dags. 13. febrúar 2024, f.h. [B]., kt. […] (hér eftir félagið), þar sem borin er fram kæra vegna ákvarðana ársreikningaskrár f.h. ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá), um að leggja stjórnvaldssektir á félagið þar sem ársreikningum fyrir reikningsárin 2019, 2020 og 2021 hafi ekki verið skilað.
Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Forsendur og niðurstaða
Félagið var úrskurðað gjaldþrota 20. september 2023 og afskráð 4. nóvember 2024. Félagið hefur því ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu ráðuneytisins. Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að vísa frá kæru á ákvörðun ársreikningaskrá.
Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær má rekja til mikilla anna ráðuneytinu. Þá er vakin athygli á að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.
Úrskurðarorð
Kæru á ákvörðunum ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, um að leggja á sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings einkahlutafélagsins [B] ehf. vegna reikningsárana 2019,2020 og 2021 er vísað frá_._