Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings
Hinn 28. janúar 2025, var í menningar- og viðskiptaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Ráðuneytinu barst erindi, [A], dags. 28. nóvember 2023, f.h. [B] ehf., kt. […] (hér eftir félagið), þar sem borin er fram kæra vegna ákvörðunar ársreikningaskrár f.h. ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá), dags. 3. október 2023, um að leggja stjórnvaldssekt á félagið þar sem ársreikningi fyrir reikningsárið 2022 hafi ekki verið skilað.
Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Forsendur og niðurstaða
Félagið var afskráð hinn 14. desember 2023. Félagið hefur því ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu ráðuneytisins. Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að vísa frá kæru á ákvörðun ársreikningaskrá.
Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær má rekja til mikilla anna ráðuneytinu.
Úrskurðarorð
Kæru á ákvörðun ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 3. október 2023, um að leggja á sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings einkahlutafélagsins [B] vegna reikningársins 2022 er vísað frá_._