Heilbrigðisþing 2026

Haldið fimmtudaginn 26. nóvember kl. 8.30 – 16.00 á Hótel Hilton

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til árlegs heilbrigðisþings 26. nóvember næstkomandi. Þingið verður að þessu sinni helgað áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn.

 

„Ég hef frá fyrsta degi sem heilbrigðisráðherra lagt áherslu á aukna þjónustu við börn. Með virkum forvörnum og snemmtækri íhlutun er hægt að draga úr hættu á því að börn þrói með sér geðrænan vanda og stuðla að heilbrigðum þroska þeirra á mikilvægasta og viðkvæmasta æviskeiðinu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisþingið verður haldið á hótel Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra

Um dagskrána

Ítarleg dagskrá verður birt innan skamms

8:00      Morgunhressing og innskráning

8:30      Setning þings

8:35      Opnunarávarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra

Umfjöllunarefni fyrsta hluta þingsins endurspeglar yfirskriftina ,,Það þarf þorp…“ þar sem fjallað er um geðheilsu barna og helstu áhrifaþætti í víðu samhengi. Þar verður jafnframt dregið fram hve samvinna allra þeirra sem koma á einhvern hátt að uppvexti og þroska barna skiptir miklu máli. Má þar nefna samvinnu þvert á ráðuneyti, með þátttöku sveitarfélaga, skólakerfisins, heilbrigðisþjónustu o.fl. og síðast en ekki síst foreldra og forráðamanna og samskipti við börnin sjálf.

Fyrirlesarar: Sigrún Daníelsdóttir frá embætti landlæknis, Anna María Káradóttir og Sandra Sif Gunnarsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu.

KAFFIHLÉ

Í öðrum hluta þingsins verður fjallað um nýsköpun á sviði geðheilbrigðisþjónustu við börn, lágþröskuldaþjónustu, hagnýtingu fjarheilbrigðislausna, heildstæða nálgun gagnvart ofbeldismálum s.s. skimun í skólum og þverfaglega móttöku og meðferð vegna slíkra mála.

Fyrirlesarar: Grímur Atlason frá Geðhjálp, Eva Rós Ólafsdóttir frá Berginu, Brynjar Halldórsson frá Háskólanum í Reykjavík, Hafdís Einarsdóttir frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Drífa Jónasdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu, Elín Vigdís Guðmundsdóttir frá Landspítala, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, María Rut Beck og Rannveig Björk Guðjónsdóttir frá Landspítala og Vignir Sigurðsson frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

HÁDEGISHLÉ

Umfjöllunarefni þriðja hluta þingsins snúa að áhrifaþáttum og áskorunum geðheilbrigðis í nútímanum. Þar verður sjónum m.a. beint að stafrænum áhrifaþáttum, áhrifum þeirra á þroska, hegðun og líðan barna og ungmenna og birtingarmyndum þeirra. Í pallborði sérfræðinga verður rætt um flókin tengsl áhrifaþátta við líðan barna, litið til lausna og hvað er til ráða.

Fyrirlesarar: Aida Bikic frá Sud Danske Universitet í Danmörku, Ársæll Már Árnason frá Háskóla Íslands, Þórhildur Halldórsdóttir frá Háskólanum í Reykjavík, Skúli Bragi Geirdal frá Netvís o.fl. (nöfn væntanleg).

Pallborð sérfræðinga: Um flókin tengsl áhrifaþátta við líðan barna og hvað er til ráða. Þátttakendur eru Aida Bikic, Ársæll Már Árnason, Elín Vigdís Guðmundsdóttir, Eva Rós Ólafsdóttir, Skúli Bragi Geirdal og Þórhildur Halldórsdóttir. Stjórnandi pallborðs er Sigrún Þóra Sveinsdóttir.

Í lok þings verður pallborð með þátttöku ungmenna þar sem þau munu velta fyrir sér ýmsu sem fram hefur komið á þinginu, setja fram skoðanir sínar og jafnvel ábendingar til stjórnvalda og samfélagsins. – Nöfn þátttakenda verða birt síðar.

15:55      Ráðstefnu lýkur

Ráðstefnustjóri verður Unnsteinn Manuel Stefánsson.

Fyrirlesarar

Aida Bikic

Aida er með doktorsgráðu í sálfræði með sérþekkingu á ADHD, taugafjölbreytileika og skjánotkun. Hún er dósent við Háskóla Suður-Danmerkur (SDU) og sinnir rannsóknum í samstarfi við Yale-háskólann á áhrif skjánotkunar á heila, líðan og þroska barna og ungmenna. Aida starfar einnig sem ráðgjafi í Danmörku, Þýskalandi og á vettvangi Evrópusambandsins, með áherslu á að styðja skóla, stofnanir/félög og stefnumótendur við að skapa heilbrigðara stafrænt umhverfi fyrir börn og ungmenni.

Anna María Káradóttir

Upplýsingar væntanlegar

Ársæll Már Árnason

Ársæll Arnarsson er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann hefur áratuga reynslu af rannsóknum á heilsu og líðan barna og unglinga. Eftir hann liggja 6 bækur og um 100 vísindagreinar sem fjalla meðal annars um einelti, geðheilsu og sjálfsvíg. Hann stjórnaði þátttöku Íslands í tveimur stórum alþjóðlegum rannsóknum og hefur verið ráðgjafi fyrir bæði UNICEF og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina. Nýjasta bók hans kemur út í byrjun næsta árs og nefnist „Listin að vera leiðinlegt foreldri“.

Brynjar Halldórsson

Dr. Brynjar Halldórsson er dósent í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík, sérfræðingur í klínískri sálfræði og starfar við Landspítala og rannsakandi við Oxford-háskóla. Hann lauk doktorsprófi frá University of Bath og starfaði um árabil í Bretlandi við rannsóknir og klínískt starf. Sérsvið hans eru kvíðaraskanir og áráttu- og þráhyggjuröskun hjá börnum og fullorðnum. Hann leiðir innleiðingu FLIKK, stafrænnar hugrænnar atferlismeðferðar við kvíða barna, á landsvísu.

Drífa Jónasdóttir

Drífa er sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu í heilbrigðisráðuneytinu þar sem hún sinnir stefnumótun og þróun heilbrigðisþjónustu, meðal annars á sviði ofbeldis- og áfallamála. Hún er með meistaragráðu í hagnýtri félagslegri sálfræði frá University of Sussex, framhaldsnám í afbrotafræði og réttarfari frá University of Brighton og stundar doktorsnám við læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að kynbundnu ofbeldi, afleiðingum ofbeldis á heilsu og líðan og viðbrögðum heilbrigðiskerfisins til handa þolendum ofbeldis. Áður starfaði hún meðal annars hjá Kvennaathvarfinu, Hagstofu Íslands og Barnavernd Reykjavíkur.

Elín Vigdís Guðmundsdóttir

Elín Vigdís Guðmundsdóttir er lögfræðingur, stofnandi og formaður SÁTTar, samtaka um átröskun og tengdar raskanir. Hún starfar sem lögfræðingur hjá meðferðarheimilinu Krýsuvík og ráðgjafi hjá átröskunarteymi Landspítala.

Elín hefur um árabil beitt sér fyrir aukinni fræðslu, forvörnum, snemmtækri íhlutun og bættum meðferðarúrræðum á sviði geðheilbrigðismála. Hún hefur leitt fjölbreytt fræðslu- og forvarnarverkefni, meðal annars landsátak í fræðslu um átraskanir fyrir heilbrigðisstarfsfólk 2025-26 með styrk frá Styrktarsjóði geðheilbrigðis. Hún leiðir norræna samstarfsverkefnið Nordic Hope, tekur þátt í evrópskum verkefnum og á í virku samstarfi við fagfólk, stofnanir og félagasamtök hérlendis og erlendis.

Elín beinir sjónum sínum sérstaklega að réttindum barna og ungmenna, mikilvægi þess að bregðast tímanlega og með viðeigandi hætti við þegar geðrænn vandi, svo sem átraskanir, kemur fram, og að tryggja einstaklingum og fjölskyldum þeirra aðgengilegan og samfelldan stuðning. Hún brennur fyrir því að efla samstarf, rjúfa fordóma og stuðla að raunverulegum kerfisbreytingum og/eða umbótum í geðheilbrigðisþjónustu.

Eva Rós Ólafsdóttir

Eva Rós er framkvæmdastjóri Bergsins headspace, sem veitir ungu fólki á aldrinum 12–25 ára gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning án tilvísunar. Hún er félagsráðgjafi að mennt og hefur víðtæka reynslu af félags- og velferðarþjónustu, meðal annars úr fangelsis- og fullnustumálum, barnavernd og þjónustu við flóttafólk.

Eva Rós hefur starfað hjá Berginu frá opnun þess árið 2019, áður sem fagstjóri og nú sem framkvæmdastjóri. Í starfi sínu hefur hún meðal annars unnið að uppbyggingu og þróun þjónustunnar, auknu aðgengi ungs fólks að snemmtækum stuðningi og útvíkkun þjónustu Bergsins víðar um land.

Hún leggur sérstaka áherslu á að ungt fólk geti fengið aðstoð snemma, á eigin forsendum og án óþarfa hindrana.

Grímur Atlason

Upplýsingar væntanlegar

Hafdís Einarsdóttir

Hafdís Einarsdóttir er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði. Hún lauk Cand Psych námi frá Háskóla Íslands og einnig tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá sama skóla. Hún hefur starfað við greiningar, ráðgjöf og meðferð auk þess að hafa sinnt kennslu og haldið ýmis námskeið. Hafdís er verkefnisstjóri FLIKK hjá Heilsubrú þar sem helsta verkefnið er innleiðing FLIKK, stafrænnar hugrænnar atferlismeðferðar við kvíða barna, á heilbrigðisstofnanir um allt land.

María Rut Beck

María Rut er verkefnastjóri á Landspítala. Nánari upplýsingar væntanlegar.

Rannveig Björk Guðjónsdóttir

Rannveig Björk er deildarstjóri á bráðamóttöku barna á Landspítala. Nánari upplýsingar væntanlegar.

Sandra Sif Gunnarsdóttir

Sandra Sif Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í heilbrigðisstjórnun, diplómu í kynfræði og stundar Executive MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Hún starfar sem sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu í heilbrigðisráðuneytinu, þar sem hún vinnur meðal annars að stefnumótun og verkefnum á sviði geðheilbrigðis, sjálfsvígsforvarna, kynheilbrigðis og málefna hinsegin fólks. Áður var Sandra deildarstjóri Laugarássins, meðferðargeðdeildar Landspítala, þar sem hún leiddi þverfaglegt starfsfólk og umbótastarf. Hún hefur meðal annars leitt innleiðingu jafningjastuðnings (IPS) innan geðheilbrigðisþjónustu Landspítala. Sandra hefur sérstakan áhuga á fólki og því hvernig megi skapa betri þjónustu með samstarfi, skýrum ferlum og virkri þátttöku notenda og fagfólks. Hún sér jafnframt mikil tækifæri í ábyrgri nýtingu gervigreindar til að styðja við betri þjónustu og ákvarðanatöku.

Sigrún Daníelsdóttir

Upplýsingar væntalegar

Skúli Bragi Geirdal

Skúli Bragi Geirdal er fjölmiðlafræðingur að mennt og sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis. Hann starfar í dag sem sviðsstjóri Netvís - Netöryggismiðstöðvar Íslands. Skúli stofnaði og heldur úti Tengslaneti um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi. Auk þess felst starf hans m.a. í stefnumótunarvinnu, alþjóðlegu samstarfi, fræðslustarfi og umsjón með rannsóknum Fjölmiðlanefndar á miðlalæsi sem unnar eru í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu. Síðustu ár hefur Skúli ferðast með forvarnar og fræðsluerindi um félagslegt netöryggi og miðlalæsi um allt land og haldið yfir 600 erindi fyrir um 30.000 manns. Hann er varaformaður UMFÍ  og stundakennari í fjölmiðlafræðum við Háskólann á Akureyri.

Vignir Sigurðsson

Vignir er sérfræðingur í barnalækningum með doktorspróf í læknisfræði frá Gautaborgarháskóla. Hann starfar sem yfirlæknir barnalækninga og framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) ásamt stöðu gestalektors við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Síðasta árið hefur hann tekið þátt í námsbraut í nýsköpun í heilbrigðiskerfinu á Landspítala og sem hluti af því tekið þátt í KLAK Health heilbrigðistæknihraðli sem einn af stofnendum HILDA tæknilausnarinnar. Á HSU hefur hann hefur leitt þróun lífstílsmóttöku fyrir börn með offitu, Kraftmiklir Krakkar, á heilsugæslum Suðurlands. Í september 2026 setti Vignir af stað nýtt verkefni með stuðningi frá Heilbrigðisráðuneytinu, Fókus til Framtíðar, sem miðar að því að bæta aðgengi barna á Suðurlandi að meðferð vegna ADHD.

Þorbjörg Anna Steinarsdóttir

Þorbjörg Anna er hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum og diplómu í Heilsugæsla í héraði: klínísk leið frá Háskólanum á Akureyri þar sem hún vann m.a. verkefni í tengslum við áföll barna og áfallamiðaða nálgun. Hún starfar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á heilsugæslustöð Selfoss þar sem hún sinnir heilsuvernd skólabarna, er verkefnastjóri og teymisstjóri Fjölskylduteymis Árborgar. Í gegnum árin hefur Þorbjörg komið að vinnu fræðsluefnis hjúkrunarfræðinga fyrir grunnskólabörn, er hluti af teyminu sem liggur að baki Kraftmiklum krökkum, hefur haldið erindi t.d. á ráðstefnu RGR um kynheilbrigði og fjölbreyttan taugaþroska. Hennar ástríða innan heilsugæslunnar er á heilsuvernd skólabarna og hefur hún mikinn áhuga á að lyfta upp og efla það mikilvæga starf og hjúkrunarfræðinga sem því sinna. Hún tók þátt í pilot verkefni HRN varðandi nýjar spurningar um ofbeldi í viðtali við grunnskólabörn um heilsu og líðan.

Þórhildur Halldórsdóttir

Þórhildur er dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og klínískur barnasálfræðingur. Hún lauk doktorsprófi í klínískri barnasálfræði frá Virginia Tech og hefur starfað við meðal annars Max Planck Institute for Psychiatry, Háskóla Íslands og Karolinska Institutet. Rannsóknir hennar beinast að geðheilbrigði barna og ungmenna, með sérstaka áherslu á hvernig umhverfi og reynsla móta líðan yfir æviskeiðið. Undanfarin ár hefur hún meðal annars rannsakað tengsl samfélagsmiðla, tölvuleikja og annarrar stafrænnar miðlanotkunar við líðan ungmenna, auk áhrifa reglna um símanotkun í skólum. Hún hefur sérstakan áhuga á að skilja hvenær, hvernig og fyrir hvaða ungmenni stafræn tækni tengist líðan.

Um erindin

Meðferð við kvíðavanda barna óháð póstnúmeri: Innleiðing FLIKK á Íslandi

Kvíðaraskanir eru meðal algengustu geðrænu vandamála barna. Þær hafa víðtæk áhrif á líðan, skólagöngu og félagslíf og fylgja börnum oft fram á fullorðinsár ef ekkert er að gert. Til er árangursrík meðferð, en aðgengi að henni hefur lengi verið ójafnt. Biðlistar eru langir og fjölskyldur utan höfuðborgarsvæðisins hafa átt erfitt með að fá viðeigandi þjónustu.

Í erindinu fjalla Brynjar Halldórsson og Hafdís Einarsdóttir um FLIKK, stafræna hugræna atferlismeðferð við kvíða barna sem foreldrar leiða með stuðningi meðferðaraðila. Meðferðin hefur nú verið innleidd í heilsugæslu um allt land. Meðferðin er gjaldfrjáls og fjölskyldur geta sjálfar óskað eftir meðferðinni án tilvísunar. Þannig nýtist tími sérhæfðra meðferðaraðila betur og fleiri börn fá gagnreynda meðferð fyrr.

Brynjar og Hafdís segja frá aðdraganda verkefnisins, innleiðingunni og reynslu af notkun meðferðarinnar. Þau ræða einnig hvað þarf til svo að stafrænar lausnir verði raunverulegur hluti af heilbrigðisþjónustu en ekki bara tilraunaverkefni.

Ofbeldi gegn börnum sem lýðheilsuáskorun: Hlutverk heilbrigðisþjónustu í snemmbærri greiningu og viðbrögðum

Í erindinu fjallar Drífa Jónasdóttir um nýtt verkefni stjórnvalda sem miðar að því að styrkja Heilsu og líðan samtöl í heilsuvernd skólabarna með það að markmiði að skapa börnum öruggt tækifæri til að ræða líðan, öryggi og mögulega reynslu af ofbeldi. Farið verður yfir þróun verkefnisins, reynslu af forprófun í grunnskólum og hvernig verkefnið tengist uppbyggingu skýrra þjónustuleiða og sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem þurfa stuðning vegna áfalla svo sem ofbeldis.