SS kerrur ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, um að fella niður úthlutun aflamarks byggðakvóta Blönduóss í Blönduósbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Smára HU-7, skipaskrárnúmer 6395.
Hafnarnes Ver hf., kærir ákvörðun Fiskistofu dags. um að synja félaginu um leyfi til endurvigtunar á afla skv. reglugerð nr. 224/2006 um vigtun og skráningu sjávarafla, með áorðnum breytingum.
Nesbrú ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu um skráningu umframafla og boðuð álagning gjalds samkvæmt lögum nr. 37/1992 um ólögmætan sjávarafla.
Stjórnarmenn í Veiðifélagi Árnesinga kæra ákvarðanir Fiskistofu, dags. 28. mars og 17. maí 2011, um að staðfesta nýtingaráætlanir deilda við Stóru-Laxá og Tungufljót, sem eru deildir í Veiðifélagi Árnesinga.
G.P.G. fiskverkun ehf., kærir úthlutun byggðakvóta á Húsavík í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2011/2012.
Hjalti Proppé Antonsson, kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Hamónu ÍS-36, skipaskrárnúmer 1695.
Hólmgeir Pálmason, kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. júlí 2012, um að ekki verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Pálma ÍS-24, skipaskrárnúmer 6911.
Valgeirsson ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, um að hafna umsókn kæranda um að bátnum Rán ÍS-261, skipaskrárnúmer 7118 verði úthlutað af byggðakvóta Flateyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012.
Baugás ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Elínar ÍS-76, skipaskrárnúmer 6360.