09 nóvember 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Ný vitundarvakning hvetur fólk til að undirbúa efri árin

{image.Description}
Gamli Nói hnýtir flugu í nýrri vitundarvakningu sem minnir á að með því að rækta líkama, huga og tengsl við aðra stuðlum við að betri líðan.

Landsmenn eru í nýrri vitundarvakningu hvattir til að huga tímanlega að eigin heilsu, félagslegum tengslum og virkni á efri árum. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið stendur fyrir átakinu sem er hluti af verkefninu Gott að eldast.

Vitundarvakningunni er ætlað að minna á að undirbúningur fyrir efri árin hefst löngu áður en fólk lætur af störfum. Leikarinn Sigurður Sigurjónsson bregður sér í gervi Gamla Nóa og sýnir á skemmtilegan hátt hvernig hægt er að undirbúa þetta nýja æviskeið. Ingeborg frænka kemur einnig við sögu.

Meginboðskapurinn er einfaldur: Mikilvægt er að gera eitthvað á hverjum degi sem styrkir líkamann, ræktar hugann og eflir félagsleg tengsl.

Það getur falist í reglulegri hreyfingu, gönguferðum eða sundi, að læra eitthvað nýtt, takast á við krefjandi verkefni eða rækta sambandið við vini og fjölskyldu. Ekki síður skiptir máli að finna sér áhugamál og félagsstarf sem veitir gleði og tilgang.

Þegar fólk lætur af störfum verða oft miklar breytingar á daglegu lífi. Því er mikilvægt að hafa áður byggt upp félagsleg tengsl, fundið sér áhugamál og tileinkað sér venjur sem stuðla að góðri heilsu.

Efri árin, eða silfurskeiðið, fela í sér ný tækifæri og verkefni. Líkt og þegar fólk undirbýr sig fyrir nýtt starf getur góður undirbúningur skipt sköpum fyrir það hvernig þessu æviskeiði er varið.

 

Gamli Nói á frænku sem heitir Ingeborg og hann tekur oft með sér þegar hann fer í sund, á viðburði eða annað.
Gamli Nói á frænku sem heitir Ingeborg og hann tekur oft með sér þegar hann fer í sund, á viðburði eða annað.

Sameiginlegt verkefni samfélagsins

Gott að eldast snýst ekki eingöngu um skipulag opinberrar þjónustu heldur einnig um viðhorf samfélagsins til öldrunar, þátttöku og sjálfstæðis eldra fólks.

Mikilvægt er að fólk á öllum aldri hugi að eigin heilsu og virkni en jafnframt að samfélagið stuðli að góðum félagslegum tengslum og vinni gegn einangrun. Þar geta fjölskyldur, vinir, nágrannar, félagasamtök og nærsamfélagið allt gegnt mikilvægu hlutverki.

Með áframhaldandi innleiðingu Gott að eldast og nýrri aðgerðaáætlun er stefnt að því að byggja upp heildstæða, sveigjanlega og sjálfbæra þjónustu sem mætir þörfum eldra fólks um allt land.

Leiðarljósið er að fleiri geti notið góðra og virkra efri ára, haldið sjálfstæði sínu og búið við öryggi og lífsgæði eins lengi og kostur er.

Nánari upplýsingar um Gott að eldast eru á gottadeldast.is.

Var efnið hjálplegt?