Hoppa yfir valmynd

Gott að eldast

Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr.

Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þetta. Sú vegferð er nú hafin undir heitinu Gott að eldast.

Stjórnvöld taka þar utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti.

Grunnhugsunin er sú að eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Aðgerðaáætlun 2023-2027

Verkefnastjórn hefur unnið að aðgerðaáætlun til fjögurra ára í víðtæku samráði við hagaðila. Félags- og vinnumarkaðsráðherra mælti í vor fyrir áætluninni sem þingsályktunartillögu og Alþingi samþykkti hana þann 10. maí sl.

Hvað er Gott að eldast?

Mikilvægt er að þjónusta sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum eldra fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi. Viltu veita meira um Gott að eldast? Hér er kynningarbæklingur um verkefnið, með tímalínu fram til ársins 2027.

Gagnvirkt mælaborð:

 

KPMG hefur sett upp gagnvirkt mælaborð sem sjá má hér að ofan og inniheldur tölulegar upplýsingar og útreikninga. Kostnaðar- og ábatagreining KPMG sýnir með skýrum hætti að eldra fólk er virði en ekki byrði.

Virði en ekki byrði

Ein stærsta breytingin á samsetningu samfélagsins næstu árin er fólgin í því að þjóðin er að eldast. Í því felst ekki einungis áskorun heldur einnig tækifæri.

Verkefnið Gott að eldast er á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og er unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband eldri borgara, auk fjölda annarra hagaðila.

Verkefnastjórn var skipuð sumarið 2022 og hefur unnið að mótun ofangreindrar aðgerðaáætlunar.

Skýrsla KPMG

Skýrslan sem KPMG vann fyrir Gott að eldaster aðgengileg hér á vefnum. Hún inniheldur kostnaðar- og ábatagreiningu og fylgir með gagnvirka mælaborðinu sem finna má ofar á síðunni.

Fjölmennur kynningarfundur

Mörg hundruð manns fylgdust með opnum kynningarfundi um drög að aðgerðaáætluninni. Í frétt um fundinn getur þú bæði lesið um það hvað fór fram og nálgast upptöku af fundinum.

Fléttum saman þjónustuna

Meginþungi aðgerða liggur í þróunarverkefnum sem ganga út á að finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin. Sömuleiðis verður ráðist í aðgerðir sem hverfast um heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu, sveigjanlega þjónustu og stórbættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk. 

Allar aðgerðir miða að því að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst.

Og þá verður svo sannarlega gott að eldast á Íslandi. 



Fréttir


Þjónustan í dag

Staðan í dag, þjónusta við eldra fólk

Framtíðarsýn

 

 

Framtíðarsýn þar sem þjónusta fléttast saman

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum