Hoppa yfir valmynd

Þjónusta við aldraða

 

Dagdvöl

Í flestum stærri sveitarfélögum er möguleiki á dagdvöl en dagdvöl er tímabundið stuðningsúrræði við aldraða sem búa í heimahúsum. Dagdvöl getur verið almenn dagdvöl, sérhæfð dagdvöl fyrir fólk með heilabilun og dagdvöl með endurhæfingu. Dagdvöl aldraðra þarf a.m.k. að bjóða upp á tómstundaiðkun, aðstöðu til léttra líkamsæfinga, máltíð, hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun. Í dagdvöl aldraðara skal veit hjúkrunar- og læknisþjónustu og þar skal einnig vera aðstaða til þjálfunar. Akstur til og frá heimili er innifalinn í dvalargjaldi. Hægt er að sækja um dagdvöl hjá viðkomandi stofnun, en á höfuðborgarsvæðinu eru biðlistar og umsóknir vegna dagdvalar fyrir fólk með heilabilun í umsjón félagsráðgjafa á Landakoti.

Félagsleg heimaþjónusta

Aldraðir í heimahúsum eiga rétt á heimaþjónustu geti þeir ekki hjálparlaust annast heimilishald og persónulega umhirðu. Sveitarfélög veita þessa þjónustu á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga en setja sjálf nánari reglur um framkvæmdina.

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun er ætlað að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Heimahjúkrun er almennt á hendi heilbrigðisstofnana í hverju heilsugæsluumdæmi nema í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins þar sem heimahjúkrun er veitt af Heimaþjónustu Reykjavíkur sem heyrir undir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þar hefur félagsleg heimaþjónusta verið sameinuð heimahjúkrun. Á Höfn í Hornafirði heyrir heimahjúkrun einnig undir sveitarfélagið. Ekkert gjald er tekið fyrir heimahjúkrun.

Félagsstarf aldraðra

Mörg sveitarfélög starfrækja félagsmiðstöðvar þar sem fram fer félagsstarf. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk námskeiða. Félagsstarfið stuðlar að samskiptum og veitir félagsskap. Þar er meðal annars boðið upp á mat og kaffi, tómstundaiðju og hreyfingu. Nánari upplýsingar fást hjá sveitarfélögum.

Þjónustuíbúðir

Sum sveitarfélög leigja út þjónustuíbúðir til eldri borgara sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að fá í heimahúsum án þess að hafa þörf fyrir dvöl á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Í lögum um málefni aldraðra er skilgreint hvaða þjónusta skuli veitt í þjónustuíbúðum og segir að í þeim skuli vera öryggiskerfi og völ á fjölbreyttri þjónustu, svo sem mat, þvotti og þrifum, og aðgangur að félagsstarfi. Íbúar í þjónustuíbúðum eiga sama rétt á heimaþjónustu og aðrir íbúar sveitarfélagsins. Upplýsingar um þjónustuíbúðir eru veittar hjá viðkomandi sveitarfélögum.

Hagir og líðan aldraðra á Íslandi árið 2020

Hér má finna niðurstöður könnunarinnar Hagir og líðan aldraðra á Íslandi árið 2020 sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir félagsmálaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Landssamband eldri borgara.

Þetta er í fimmta sinn sem könnun á högum og líðan aldraðra er lögð fyrir, en hún var fyrst gerð árið 1999, síðan árið 2006, svo árið 2012 og í fjórða sinn 2016. Í niðurstöðunum má sjá þróun frá fyrri könnunum þar sem upplýsingar til þess eru fyrir hendi, en einnig hefur verið bætt við nokkrum nýjum spurningum, meðal annars nokkrum spurningum varðandi líðan á tímum COVID-19. Tekið var 1800 manna tilviljunarúrtak fólks 67 ára og eldri úr þjóðskrá og spurningar lagðar fyrir ýmist í síma eða með netkönnun. Svarhlutfall var 60%.

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 13.4.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum