Hoppa yfir valmynd

Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins

Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins er ráðuneytisstofnun sem sinnir upplýsingatæknimálum og ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum ráðuneytanna, að hluta eða í heild, með það að markmiði að stuðla að hagkvæmni í rekstri. Umbra heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Skrifstofur Umbru - Skuggasundi 3

Framkvæmdastjóri Umbru er Viktor J. Vigfússon.

Hlutverk

Miðstöð innri þjónustu og þróunar sem gerir ráðuneytunum kleift að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni.

Framtíðarsýn

Við bindum ráðuneytin saman í eina heild með framúrskarandi þjónustu og fjölbreyttum lausnum.

Meginverkefni

Megin rekstrarverkefni þjónustumiðstöðvarinnar felast í eftirfarandi þjónustu til ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands:

  • Viðhalda öruggum aðgangi að miðlægum upplýsingakerfum.
  • Útvega starfsfólki þann búnað og þjónustu sem þau þurfa.
  • Viðhalda miðlum fyrir innri og ytri upplýsinga­gjöf og samskipti.
  • Ráðgjöf varðandi nýja tækni, gagnavernd og gagnastjórnun.
  • Rekstur og öryggi bygginga og annarra innviða.
  • Þjálfun, fræðsla og annar stuðningur við að efla mannauð.
  • Þjónustuver sem annast m.a. símsvörun, móttöku og almenna þjónustu við starfsfólk og almenning.
  • Akstursþjónusta og öryggisgæsla fyrir ráðherra.
  • Þjónusta við fastanefndir ráðuneytanna og aðra tengda aðila.
  • Önnur virðisaukandi þjónusta í takt við þarfir á hverjum tíma.

Persónuverndarskilmálar Umbru - þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins

Umbru - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins er ætlað að annast reksturinn á sem hag­kvæm­astan hátt í nánu samstarfi við ráðuneytin. 

Símanúmer afgreiðslu er 545 8800. Opið er frá 8:30 – 16:00. Netfangið er: [email protected] 

Rekstur skýjageira fyrir stofnanir

Umbra og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa gert með sér samning sem hefur það að markmiði að koma á samstarfi milli opinberra aðila um nýtingu á tölvuskýjalausnum ríkisins. Í því felst að Umbra sér um rekstur og stjórnun á Microsoft 365 umhverfi og lausnum (skýjageira) fyrir hönd tiltekinna stofnana.

Helstu netföng

Afgreiðsla:
[email protected]
Stjórnarráðsskólinn:  
[email protected] 
Umsjón fasteigna:
[email protected] 
Öryggismál:
[email protected]
Rekstur tölvukerfa:
[email protected]
Vefmál:
[email protected]

 

Listi yfir starfsfólk Umbru.

Skipulag

 

 

Umbra - Staðsetning

Heimilisfang

Skuggasundi 3 - 101 Reykjavík

Sími: 545 8800

Kt: 420169-0439

Netfang

postur[hjá]rfs.is

Afgreiðsla virka daga frá kl. 08:30 - 16:00

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum