Leiðbeiningar fyrir hlusta-hnapp og stækkun texta
Ef smellt er á hlusta-hnappinn, sem sjá má uppi til hægri á flestum síðum vefsins, les vefþula texta síðunnar. Vefþulan kemur til dæmis að góðum notum fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með að lesa texta á vefsíðum og auðveldar þeim að átta þig á efni hennar.
Hvernig virkar vefþulan?
Til hefja lestur er einfaldlega smellt á hlusta-hnappinn.
Spilarinn byrjar að lesa texta vefsíðunnar upphátt og fleiri stillingarmöguleikar birtast.
Spilarinn býður uppá eftirtalda kosti:
- Hlé/lestur.
- Stöðva lestur.
- Framvinduslá til að velja stað á síðunni.
- Stjórna hljóðstyrk.
- Stillingatákn til að stjórna frekari virkni spilarans.
- Niðurhalstákn til að sækja hljóðskrá.
- Loka spilaranum.
Nota má Tab-lykilinn eða Shift + Tab til að ferðast um spilarann. Ýtt er á Enter-hnappinn til að virkja valda aðgerð eða krækju.
Hlustað á valinn texta:
Velja má tiltekinn texta til að fá hann lesinn. Síðan er smellt á hlusta-hnappinn sem birtist við hlið músarbendilsins.
Þegar smellt er á hlustunarhnappinn birtist spilarinn og byrjar að lesa textann sem valinn er.
Í stillingavalmyndinni geturðu:
- Valið hvort textinn sé upplýstur á meðan spilarinn les hann.
- Valið hvort einstök orð séu upplýst eða heilar setningar.
- Valið lit og leturgerð upplýsta textans.
- Valið hvort spilarinn sýnir texta setningarinnar neðst á síðunni með stærra letri samhliða upplýsta textanum.
- Valið lestrarhraða, það er hvort spilarinn les hægt, miðlungs hratt eða hratt.
- Valið hvort síðan fylgi sjálfkrafa upplýsta textanum.
- Valið hvort hlustunarhnappinn sé sýnilegur þegar texti er valinn.
- Endurheimt allar upprunalegar stillingar.
Hlusta má á alla stillingarmöguleikana með því að smella á hlustunarhnappinn efst til hægri í stillingavalmyndinni.
Stækka og minnka texta
Notendur vefsins geta minnkað og stækkað texta séu þeir að skoða hann í tölvu með lyklaborði og/eða mús. Til að stækka er Ctrl-hnappnum haldið niðri og smellt á "+" (CDM og "+" í Appeltölvum). Til að minnka er Ctrl-hnappnum haldið niðri og smellt á "-" (CDM og "-" í Appeltölvum). Einnig er hægt að halda niðri Ctrl-hnappnum og nota skrunhjól tölvumúsa til að minnka og stækka.
Um vefinn
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.