Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu

Ávinningur og mælingar

  • Ávinningsreiknir - í vinnslu
  • Lifandi mælaborð og stöðulisti - í vinnslu

Mælikvarðar

Nýting leyfa

Hlutfall leyfishafa sem notar Copilot á skilgreindu mælitímabili. Fjöldi úthlutaðra leyfa birtur samhliða. Nota sama tímabil og sömu skilgreiningu á virkni í öllum samanburði.

Regluleg notkun

Hlutfall leyfishafa sem notar Copilot í að minnsta kosti þremur af síðustu fjórum vikum, ef fyrirliggjandi notkunargögn styðja þá mælingu.

Þátttaka í fræðslu

Hlutfall skilgreinds markhóps sem hefur lokið grunnfræðslu. Sérhæfð fræðsla mæld sérstaklega fyrir þá hópa sem hún beinist að.

Framvinda úrbóta í gagnavernd

Fjöldi opinna og lokinna forgangsúrbóta vegna aðgangsheimilda, gagnamerkinga og DLP. Hver úrbót hefur ábyrgðaraðila, lokadag og staðfestingu á framkvæmd.

Tími við framkvæmd verkefna

Miðgildi virks vinnutíma við sambærileg verkefni fyrir og eftir að Copilot er tekið í notkun. Tími í yfirferð og leiðréttingar er talinn með.

Gæði og endurvinna

Hlutfall afurða sem stenst fyrirfram skilgreind gæðaviðmið við fyrstu yfirferð. Skrá jafnframt tíma í endurvinnu þar sem það er raunhæft.

Verkefni komin í reglulega notkun

Fjöldi skilgreindra verkefna þar sem Copilot er notað reglulega, verkefnaeigandi er til staðar og árangur hefur verið metinn. Prufur og hugmyndir eru skráðar sérstaklega.

Upplifun og færni notenda

Færni í notkun

Ég get nýtt Copilot í þeim verkefnum sem eiga við í mínu starfi.

Þekking á öruggri notkun

Ég veit hvaða upplýsingar ég má nota með Copilot samkvæmt reglum ríkisins

Mat á niðurstöðum

Ég get metið hvenær þarf að sannreyna eða leiðrétta niðurstöður Copilot.

Upplifður tímasparnaður

Copilot styttir þann heildartíma sem ég þarf til að ljúka verkefnum, að meðtalinni yfirferð og leiðréttingum.

Upplifuð gæði

Copilot hjálpar mér að bæta gæði vinnunnar.

Hvenær og hversu oft?

  • Mánaðarlega: Fylgjast með leyfanýtingu, reglulegri notkun, fræðslu og úrbótum í gagnavernd.
  • Fyrir og eftir 6–8 vikna notkun: Mæla tíma og gæði í 3–5 völdum verkefnum og leggja stuttu könnunina fyrir sama hóp.
  • Eftir fyrstu mælingu: Setja raunhæf markmið um umbætur. Sýna niðurstöður eftir þátttökuhópum eða sviðum, ásamt fjölda svara og svarhlutfalli.