Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu

Fræðsla og þjálfun

Stór og mikilvægur þáttur í innleiðingu Copilot er fræðsla og þjálfun starfsfólks.

Útbúin hafa verið myndbönd sem fræða fólk um grunnatriði þegar kemur að notkun gervigreindartóla, hér þó gert með Copilot í forgrunni en á þó við um fleiri tól.

Í framhaldinu verður dýpra námskeið sömuleiðis á myndbandsformi hugsað fyrir þau sem eru komin með Copilot inn í sitt vinnuumhverfi.

Næsta skref er hlutverkamiðuð námskeið þar sem verður boðið upp á staðnámskeið fyrir ákveðna notendahópa þvert á ríkið. Þei notendahópar sem stefnt er að fara af stað í október til nóvember eru fjármál, lögfræði, mannauður, stjórnendur og sérfræðingar.

Það ber að hafa í huga að gervigreindinni fleygir fram og því mikilvægt að fara reglulega á námskeið og halda sér upplýstum þegar kemur að notkun.

Hvað er Copilot

Fræðsluefni námskeið