Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu

Hvað er Copilot?

Microsoft Copilot er gervigreindarlausn sem nýtist innan Microsoft 365 (t.d. Word, Excel, PowerPoint, Outlook og Teams). Með Copilot getur starfsfólk m.a.:

  • dregið saman skjöl og samskipti
  • unnið fundargerðir og samantektir
  • aðstoðað við gerð texta, kynninga og gagnaúrvinnslu
  • leitað í eigin vinnuumhverfi á skilvirkari hátt

 

Copilot hefur eingöngu aðgang að þeim gögnum sem notandi hefur þegar heimild fyrir og gögn eru ekki notuð til að þjálfa grunnlíkön.