Ársskýrsla dómsmálaráðherra 2023

Ávarp dómsmálaráðherra

Þegar ég tók við embætti ákvað ég að leggja sérstaka áherslu á fimm málaflokka. Þeir eru útlendingamálin og þá sérstaklega hið alþjóðlega verndarkerfi, Landhelgisgæslan, fangelsismál, löggæslumál með áherslu á skipulagða brotastarfsemi og aðrar ógnir og loks kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi. Þetta eru allt málefni sem eru ekki einungis mikilvæg í mínum huga heldur aðkallandi fyrir samfélagið. Íslensk náttúruöfl sáu til þess að almannavarnir urðu að sjötta áherslumálinu á árinu 2023.

Brýnar aðgerðir í útlendingamálum

Útlendingamálin eru eitt af brýnustu viðfangsefnunum í íslensku samfélagi í dag. Á rúmum áratug hefur fjöldi þeirra sem sótt hafa um vernd hér á landi aukist um 3700%. Í samanburði við hin Norðurlöndin fær Ísland hlutfallslega langflestu umsóknirnar um alþjóðlega vernd, eða 580 umsóknir á hverja 100.000 íbúa á árinu 2022, en meðaltal hinna Norðurlandanna er rúmlega 90 umsóknir. Þá hefur heildarfjöldi þeirra sem hafa fengið vernd á Íslandi, ef frá eru taldar umsóknir frá Venesúela og Úkraínu, tvöfaldast frá árinu 2021. Við erum að leggja okkar af mörkum til málaflokksins og gott betur. En þessi gríðarlega aukning reynir mikið á íslenskt samfélag, ekki síst okkar innviði, auk þess sem kostnaðurinn við verndarkerfið hefur vaxið óhóflega og er nú ríflega 20 milljarðar á ári.
Þess vegna lagði ég fram frumvarp um breytingar á útlendingalögum í því augnamiði að færa íslenskt regluverk nær því sem þekkist í löndunum sem við berum okkur helst saman við. Tilgangur frumvarpsins var að auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar og tryggja hagræðingu við nýtingu opinbers fjár og það voru mikil gleðitíðindi að sjá frumvarpið verða að lögum.

Landhelgisgæslan ein mikilvægasta stofnun Íslendinga

Landhelgisgæslan hefur ótvírætt gildi fyrir íslenskt samfélag og er einn af hornsteinum okkar í almannavörnum og viðbragði vegna alvarlegra slysa um allt land. Rekstur gæslunnar hefur verið þungur og því er afar mikilvægt að tryggja fullnægjandi rekstrargrundvöll fyrir stofnunina á komandi árum. Unnið var að því að rýna stöðu gæslunnar og marka henni stefnu til framtíðar. Þegar kemur að öryggisstarfsemi á borð við starf Landhelgisgæslunnar verðum við ávallt að forgangsraða í þágu öryggis og getum ekki gefið afslátt af kröfum í þeim efnum.
Tryggja þarf öruggt samfélag
Umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hefur tekið verulegum breytingum til hins verra hér á landi. Vitað er að hópar innlendra jafnt sem erlendra aðila hafa það að atvinnu að fremja afbrot með skipulögðum hætti. Um er að ræða alvarleg ofbeldisbrot, þjófnað, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Þetta er verulegt áhyggjuefni og nauðsynlegt er að mæta þessari stöðu með markvissum afbrotavörnum enda eru afbrotavarnir grundvallaratriði í því að halda uppi allsherjarreglu og lögum í landinu.
Breytingar á lögreglulögum eru brýnar. Skýra þarf heimildir lögreglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrotavarna og sérstaklega til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Þess vegna lagði ég um haustið fram frumvarp þess efnis og með þeirri von að með lagabreytingu verði betur hægt að fyrirbyggja afbrot og stuðla að auknu almannaöryggi.

Byggt til framtíðar í fangelsimálum

Í fangelsismálum erum við að hefja uppbyggingu til framtíðar. Ég hef kosið að líta heildrænt á málin þar sem við styðjum bæði við innviði fangelsismála en endurskoðum jafnframt fullnustukerfi okkar Íslendinga. Markmið okkar er að auka skilvirkni kerfisins en jafnframt tryggja að refsingum sé fullnægt á mannúðlegan og uppbyggilegan hátt.
Vinna hófst fljótlega á árinu við endurskoðun fullnustukerfisins. Nú þegar er hafin vinna við að stórbæta aðstöðu í fangelsum landsins og er þar stærsta, einstaka verkefnið bygging nýs fangelsis að Litla-Hrauni. Sú uppbygging þarf að gerast hratt og örugglega og grundvallast á nútímaþekkingu á sviði endurhæfingar og öryggismála, með hagsmuni fanga, starfsmanna og fjölskyldna fanga í huga. Opnum rýmum í fangelsinu á Sogni verður einnig fjölgað, þar sem 14 ný rými verða tekin í notkun á næstu mánuðum. Endurkoma fanga er minni hjá þeim sem eru í opnum fangelsum, samanborið við endurkomu fanga í lokuðum úrræðum. Samhliða þessu verður komið á betri aðskilnaði milli kynja þannig að tryggt verði að konur geti vistast þar öruggar. Að auki vil ég forgangsraða meðferðarstarfi fyrir konur og auka aðgengi kvenfanga að sérfræðiaðstoð og sálfræðingum vegna áfalla og áfallastreitu.

Brotaþolum tryggður viðeigandi stuðningur

Mikilvægt er að vinna markvisst gegn kynbundnu ofbeldi og hefur dómsmálaráðuneytið í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið unnið að því að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis viðeigandi stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu, stuðlað að aukinni samvinnu lögreglu og heilbrigðiskerfisins og styrkt reglubundið samráð þessara aðila um þjónustu við brotaþola kynferðisofbeldis.
Þá hefur 200 milljónum kr. verið varið til að fjölga stöðugildum í meðferð kynferðisbrota hjá lögreglu, ríkissaksóknara og héraðssaksóknara. Þetta hefur stytt málsmeðferðartíma kynferðisbrota og fækkað opnum kynferðisbrotamálum á ákærusviði og í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 37% á undanförnum. Þetta eru allt atriði sem skipta gríðarlegu máli.

Öflugar almannavarnir í harðbýlu landi

Á árinu 2023 vorum við ítrekað minnt á mikilvægt hlutverk almannavarna. Sjö sinnum hefur gosið á Reykjanessskaga, grípa þurfti til rýmingar í heilu bæjarfélagi sem enn sér ekki fyrir endann á og íbúar Vestmannaeyja stóðu frammi fyrir alvarlegri stöðu þegar vatnsleiðsla bæjarins varð fyrir skemmdum. Við fáum ekki nógsamlega þakkað öllum þeim viðbragðsaðilum, lögreglu, björgunarsveitum og almannavarnarfólki sem staðið hefur erfiðar og langar vaktir í þeim hremmingum sem skekið hafa íslenskt samfélag á árinu.
Margt hefur áunnist á þessu eina ári mínu í embætti en ljóst er að verkefnin fram undan eru margvísleg og krefjandi. Dómsmálaráðuneytið ber ábyrgð á mikilvægum og knýjandi málaflokkum og sem dómsmálaráðherra mun ég áfram vinna að þeim málum af heilum hug í þágu samfélags okkar allra.

Starfsemi dómsmálaráðuneytisins 2023 í tölum

Málefnasvið og málaflokkar dómsmálaráðuneytis 2023

Umfjöllun er kaflaskipt eftir málaflokkum á þeim málefnasviðum sem falla að öllu leyti eða hluta undir dómsmálaráðuneytið. Markmið eru skilgreind, stöðumat er birt og tíunduð þau verkefni sem helst stuðluðu að framgangi viðkomandi markmiða á árinu. Árangursmælingar markmiða eru tvíþættar: Mælikvarðar 2023 í fjármálaáætlun 2021–5 eru gerðir upp og sömuleiðis aðgerðir ársins, sem settar voru fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023. Fjárveitingar til ríkisaðila og verkefna sem tilheyra A-hluta ríkissjóðs eru birtar í fylgiriti með fjárlögum.

Eftirfarandi skýrsla sýnir markmið og aðgerðir eftir málaflokk. Hægt er að velja málaflokk og undiliggjandi markmið málaflokks og skoða þá mælikvarða sem settir voru fyrir markmið og málaflokk auk stöðu aðgerða sem styðja við markmið.

Sjá skýrslu

Greining á útgjöldum

Útgjöld málaflokks 2.1, Hæstiréttur, voru 241,6 m.kr. á árinu eða 5,8% umfram heimildir ársins. Að teknu tilliti til uppsafnaðra heimilda fyrri ára var staðan neikvæð um 4,1 m.kr. Staða fjárfestingaframlaga var jákvæð um 5,1 m.kr. í árslok 2022.

Héraðsdómstólar**, málaflokkur 2.2** var 18,5 m.kr. innan fjárheimilda ársins og 194,8 m.kr. þegar búið er að taka tillit til uppsafnaðra fjárheimilda fyrri ára, varasjóður málaflokksins er hluti af uppsöfnuðum heimildum. Fjárfestingar á árinu voru að fjárhæð 13,5 m.kr. og staða fjárfestingaheimilda í árslok 4,1 m.kr.

Útgjöld Landsréttar, málaflokks 2.3, voru 805,8 m.kr. á árinu. Það er 6.4 m.kr. umfram heimildir ársins en 11,1 m.kr. innan uppsafnaðra rekstrarheimilda. Fjárfestingaheimild Landsréttar var neikvæð um 10,7 m.kr. í árslok 2022.

Fjárfestingar Dómstólasýslunnar námu 18,4 m.kr. á árinu 2022 og óráðstöfuð fjárfestingaheimild í árslok nam 100 m.kr. Útgjöld Dómstólasýslunnar námu 358,4 m.kr. á árinu sem er 4.6 m.kr. umfram uppsafnaðar rekstrarfjárheimildir.

Málefnasvið 9, Almanna- og réttaröryggi, var 1.246 m.kr. umfram heimildir ársins, þegar búið er að taka tillit til uppsafnaðra heimilda fyrri ára er hallinn 1.060 m.kr. eða 3,2%. Það skýrist að mestu leyti af liðnum réttaraðstoð og bætur sem var 1.006 m.kr. í halla um áramót. Á þessu lið er málskostnaður í opinberum málum, opinber réttaraðstoð og bætur brotaþola, sem ráðuneytið hefur ekki stjórn á.

Útgjöld málaflokks 9.1, löggæsla, nam 20.767,9 m.kr. Uppsöfnuð heildarfrávik ársins voru 441,2 m.kr. eða 2,1% innan uppsafnaðra fjárheimilda. Ríkislögreglustjóri er 13 m.kr innan heimilda ársins en halli fyrri ára gerir það að verkum að árið endar í 163 m.kr. halla. Uppsöfnuð heimild Lögreglustjórans á Suðurnesjum er 128 m.kr. Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra er 62 m.kr. innan uppsafnaðra rekstrarheimilda. Það skýrist fyrst og fremst af því að ekki fékkst starfsfólk til starfa fyrr en seint á árinu, svo það vantaði í 1 ½ - 2 stöður. Útgjöld lögreglustjórans í Vestmannaeyjum eru 12,8 m.kr. umfram heimildir ársins, en að teknu tilliti til uppsafnaðra fjárheimilda fyrri ára er hann 17,7 m.kr. innan rekstrarheimilda. Fjárfestingaheimild löggæslunnar nam 1.363,5 m.kr. um áramótin 2022/2023. Það samanstendur að mestu leyti af fyrirhuguðum Schengen verkefnum sem hafa tafist og svo samhæfingamiðstöð viðbragðsaðila en framkvæmdum við stöðina hefur verið frestað.

Halli var á fjárfestingaheimild Landhelgisgæslunnar í árslok 2022 um 168 m.kr. Það skýrist að mestu leyti af umfram fjárfestingu fyrri ára. Útgjöld málaflokksins til rekstrar var 318 m.kr. umfram heimild ársins og 440,6 m.kr. uppsafnað. Margföldun eldsneytisverðs vegna heimsástands, auknum rekstrarkostnaði varðskipa samhliða komu Freyju, standsetningar hennar og staðsetningu á Siglufirði, óvænt bilun á Þór og léleg afkoma af Frontex verkefnum er helsta ástæða hallans.

Á málaflokki 9.3 eru tvær stofnanir, Ríkissaksóknari og Héraðssaksóknari. Uppsöfnuð heimild Ríkissaksóknara í árslok var 12,4 m.kr. og fjárfestingaheimildin í árslok var 9,2 m.kr. Héraðssaksóknari var 14 m.kr. umfram uppsafnaðar heimildir eða 1.1%. Fjárfestingaheimild Héraðssaksóknara var á núlli í árslok.

Fangelsismálastofnun er 23,5 m.kr. umfram heimildir ársins og 53,5 m.kr. uppsafnað. Frávik eru í launakostnaði vegna aukningar í útgjöldum vegna styttingar vinnuvikunnar í vaktavinnu og mikilla veikindafjarvista. Þá eru einnig frávik í liðnum rekstrarvörur vegna aukins kostnaðar við aðföng. Fjárfestingaheimild málaflokksins stendur í 782,2 m.kr. um áramótin, liðurinn fangelsisbyggingar er þar stærstur með 809,7 m.kr.

Málefnasvið 10, réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmálaráðuneytisins, var 64,5 m.kr. innan heimilda ársins og 134,7 m.kr í halla að teknu tilliti til yfirfærslu frá fyrri árum.

Staða sýslumanna hefur batnað frá fyrri árum, í árslok 2022 voru þeir 143,3 m.kr. innan heimilda ársins og 125.7 m.kr. að teknu tilliti til fyrri ára. Fjárfestingaheimild sýslumanna var neikvæð um 4,1 m.kr.

Fjárfestingaheimild stjórnsýslu dómsmálaráðuneytisins var neikvæð um 5,4 m.kr. í árslok. Rekstrarheimild málaflokksins var 1,7 m.kr. umfram heimildir en 181,5 m.kr. umfram heimildir þegar búið er að taka tillit til uppsafnaðrar afkomu fyrri ára. Þar munar mestu um aukinn kostnað við alþjóðasamstarf sem ekki hefur verið fjármagnaður í fjárlögum í samræmi við raunkostnað.

Úgjöld málaflokks 10.5, útlendingamál, voru 2.167,5 m.kr. eða 44,6 m.kr. umfram heimildir ársins. Að teknu tilliti til fyrri ára var staðan í árslok 2022, 36 m.kr. í halla. Liðurinn, umsækjendur um alþjóðlega vernd var 74 m.kr. í halla vegna aukningar umsókna um alþjóðlega vernd og vegna Úkraínustríðs. Útlendingastofnun er 5,5% innan heimilda og Kærunefnd útlendingamála er 1,8% innan heimilda. Fjárfestingaliður málaflokksins var 8 m.kr. um áramót og fjárfestingar ársins námu 37,3 m.kr.

Sjá mælaborð

Starfsemi ráðuneytisins á árinu 2023

Þriðja úttektarskýrsla GRETA, eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali, um Ísland var birt í október 2023 en umtalsverð vinna er fólgin í úttektum af þessu tagi.  Áherslan í þessari þriðju úttektarlotu samningsins var á aðgengi þolenda mansals að skilvirkum úrræðum og réttarkerfinu. Ísland hefur haldið áfram að þróa lagaumgjörð til að takast á við mansalsmál en nú er unnið að aðgerðaáætlun til að mæta athugasemdum í skýrslunni.

Í mars tók gildi ný aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota fyrir árin 2023 – 2025. Með áætluninni verður áfram unnið markvisst að úrbótum við meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu. Áhersla er lögð á bættan málshraða við meðferð kynferðisbrota, m.a. með auknum fjárveitingum og fjölgun stöðugilda við rannsókn kynferðisbrota. Þá er áhersla lögð á að stuðla að betri upplifun og þjónustu við bæði brotaþola og sakborninga, m.a. með því að bjóða brotaþolum viðeigandi stuðningsviðtal hjá fagaðila í kjölfar skýrslutöku hjá lögreglu, og bættri upplýsingagjöf lögreglu til þolenda um framgang máls.

Í júní kom út skýrsla um greiningu á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis sem unnin var í samræmi við ákvörðun dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisráðherra. Markmið skýrslunnar var að greina hentugustu leiðir til að tryggja starfsemi miðstöðva fyrir þolendur ofbeldis til framtíðar á Íslandi og hver aðkoma lögreglunnar ætti að vera að miðstöðvunum. Helstu niðurstöður greiningarinnar eru að þörf sé á bæði fjárhagslegum og kerfislægum stuðningi frá stjórnvöldum til að tryggja starfsemi þolendamiðstöðva til framtíðar. Þar með talið að setja mögulega sérstök lög um þjónustumiðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, skilgreina og efla stuðningsþjónustu fyrir þolendur ofbeldis, endurskoða lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og móta samræmdar reglur fyrir samstarfsaðila og leiðbeiningar fyrir fagfólk.

Sýslumenn lögðu mikla áherslu á stafrænar umbætur á árinu 2023, með það að meginmarkmiði að bæta þjónustuna enn frekar við almenning. Á árinu var lögð áframhaldandi áhersla á að styðja við stafrænar umbreytingar í starfsemi embættanna, svo sem með þörfum umbótum á starfs- og upplýsingakerfum embættanna, vefþjónustum, eyðublöðum o.fl., með það að markmiði að sýslumenn geti orðið leiðandi í rafrænni þjónustu ríkisins. Meðal málaflokka sem innleiddu stafræn eyðublöð voru fjölskyldumál, dánarbúsmál, leyfamál og skírteini. Jafnframt var aðgengi almennings bætt að útgefnum leyfum, upplýsingum um gildandi skírteini, ásamt því að forskráning fyrir umsóknir um vegabréf var gerð tiltæk á Mínum síðum á Ísland.is. Innleiðing rafrænna þinglýsinga hélt áfram og fór hlutfall rafrænna þinglýsinga hækkandi eftir því sem leið á árið. Meðal þess sem var innleitt voru tæknilausnir fyrir þinglýsingu tryggingarbréfa, afsala í kjölfar kaupsamninga og fjárnáma. Sýslumenn fengu á árinu, fyrstir opinberra stofnana, viðurkenningu á ráðstefnunni Tengjum ríkið fyrir að hafa náð öllum níu Stafrænum skrefum Ísland.is. Auk stafrænna umbóta var unnið að því að efla starfsemi sýslumanna, til að mynda með því að færa verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga til embættisins á Norðurlandi vestra. Seinni hluta ársins hófst frekari stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna, sem þjónar því markmiði að móta nánar framtíðarstefnu málaflokksins um bætta þjónustu við almenning.

Áform um breytingar á persónuverndarlögum voru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda til undirbúnings á heildarendurskoðun laganna, m.a. sem viðleitni til að leita leiða til að styðja við Persónuvernd vegna aukins álags á stofnunina undanfarin misseri en einnig til að bregðast við athugasemdum sem fram hafa komið um atriði sem betur mega fara í lögunum. Þá var unnið að uppfærslu reglugerðar frá árinu 2001 um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust en ný reglugerð þess efnis tók gildi 1. september 2023. Með hinni nýju reglugerð var leitast við að setja vinnslu persónuupplýsinga hjá fjárhagsupplýsingastofum skýrari ramma (hér er frétt: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/06/27/Ny-reglugerd-um-vinnslu-upplysinga-um-fjarhagsmalefni-og-lanstraust/).

Lagður var grunnur fyrir útgáfu nýrra nafnskírteina hjá Þjóðskrá Íslands með samþykkt nýrra laga um nafnskírteini á Alþingi í júní 2023. Ný nafnskírteini samræmast nú auknum öryggiskröfum sem gerðar eru til persónuskilríkja í Evrópu. Þau eru fullgild persónuskilríki og geta íslenskir ríkisborgarar á öllum aldri sótt um nafnskírteini og notað þau til auðkenningar. Ný nafnskírteini fela einnig í sér að hægt er að framvísa þeim sem ferðaskilríki á ferðalögum innan EES-svæðisins. Þjóðskrá ber ábyrgð á útgáfu og afhendingu nýrra nafnskírteina, sem fela í sér verulegar umbætur fyrir íslenska ríkisborgara. (hér er frétt: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/03/06/Utgafa-hafin-a-nyjum-nafnskirteinum/).

Á árinu 2023 var sett ný reglugerð um ættleiðingar sem kom í staðinn fyrir eldri reglugerð um ættleiðingar og jafnframt voru gerðar breytingar á reglugerð um ættleiðingarfélög. Með breytingunum voru m.a. færð tiltekin verkefni á sviði ættleiðinga, sem hingað til hafa verið á verksviði Íslenskrar ættleiðingar, til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Mun sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu nú t.a.m. bjóða uppkomnum ættleiddum upp á ráðgjöf hjá embættinu, en embættið býður einstaklingum upp á 5 viðtöl að kostnaðarlausu. Þá voru gerðar breytingar sem snúa að þeim skilyrðum sem umsækjendur um ættleiðingu þurfa að uppfylla, s.s. varðandi aldur og einhleypa umsækjendur o.fl.

Frumvarp dómsmálaráðherra til breytinga á lögum um alþjóðlega vernd var samþykkt 15 mars 2023, sbr. lög nr. 14/2023. Markmiðið með breytingunum var að auka skilvirkni við meðferð útlendingamála, sporna við misnotkun verndarkerfisins, skerpa á heimildum til skerðingar og niðurfellingar þjónustu og tryggja framkvæmd ákvarðana um frávísun og brottvísun.

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, var samþykkt 9. júní 2023, sbr. lög nr. 56/2023. Með lögunum voru heimildir  fyrir umsækjendur um dvalarleyfi rýmkaðar, m.a. vegna starfa sem krefjast sérfræðiþekkingar, fyrir nýútskrifaða háskólanema á grundvelli sérþekkingar þeirra og fyrir doktorsnema. Einnig voru lagðar til rýmkaðar heimildir til að endurnýja dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki og lengja gildistíma dvalarleyfis fyrir íþróttafólk og fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings. Þá var heimild til fjölskyldusameiningar fyrir dvalarleyfishafa í námi og í sérhæfðum störfum eða störfum þar sem skortur er á starfsfólki rýmkaður auk þess sem réttur breskra ríkisborgara með dvalarleyfi til fjölskyldusameiningar er áréttaður.

Lög um landamæri, nr. 136/2022, tóku gildi 10. janúar 2023 en þar voru gerðar breytingar reglum sem gilda um för einstaklinga yfir landamæri, m.a. innleidd ákveðin efnisákvæði reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins um þróun og starfsemi komu- og brottfararkerfis fyrir Schengen-svæðið, reglugerða um evrópskt ferðaupplýsinga- og ferðaheimildarkerfi og reglugerða um samvirkni milli upplýsingakerfa ESB og samhliða gerðar breytingar á lögum um útlendinga varðandi brottvísanir.