Hoppa yfir valmynd

Grænbók um samgöngumál

Grænbók um samgöngumál, þar sem metin er staða málaflokksins og lagður grundvöllur fyrir endurskoðaða stefnumótun í samgöngum til fimmtán ára, var birt í samráðsgátt stjórnvalda í sumar. Frestur til að skila umsögnum og ábendingum var til og með 10. ágúst 2021.

Tvær skýrslur hafa verið unnar upp úr ábendingum og umsögnum um grænbók um samgöngur.

Skýrslur um samantektir um sértæk málefni

Vinna við gerð grænbókar um samgöngumál hófst í upphafi árs 2021. Stöðumat grænbókarinnar byggir m.a. á upplýsingum frá framkvæmdaraðilum, þ.e. stofnunum ráðuneytisins og Isavia. Þá er í grænbókinni einnig byggt á nýjum greiningum, svo sem varðandi börn og samgöngur, jafnrétti í samgöngum, vöruflutninga, vinnusóknarsvæði, arðsemi umferðaröryggisaðgerða og aðlögun samgangna að loftslagsbreytingum.

Annar grundvöllur stöðumatsins er samtal við landsmenn og hagsmunaaðila. Átta opnir fundir voru haldnir víðsvegar um landið í mars og apríl í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga.

Grænbók er ætlað að meta stöðu samgöngumála og vera grundvöllur fyrir endurskoðaða stefnumótun í samgöngumálum til fimmtán ára (samgönguáætlun). Grænbók er umræðuskjal og í henni eru upplýsingar um samgöngur, stöðu, tölfræði, samanburð við önnur lönd og umfjöllun um ólíkar leiðir eða áherslur til að mæta þeim áskorunum sem við blasa. Niðurstöður grænbókar liggja svo til grundvallar svonefndrar hvítbók þar sem mótuð stefna til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.

Opnir samráðsfundir

Í tengslum við grænbókarvinnu stóð samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fyrir rafrænum samráðsfundum í öllum landshlutum um stöðu samgöngumála og valkosti til framtíðar. Á hverjum fundi var kastljósi beint að samgöngumálum á viðkomandi landshluta, helstu áskorunum og tækifærum. Fundirnir voru haldnir í samvinnu við landshlutasamtökin. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Jafnframt voru haldnir fundir með öðrum ráðuneytum og samstarfsaðilum, þar sem snertifletir samgönguáætlunar við aðrar áætlanir stjórnarráðsins voru ræddir.

DagsetningStaður TímiÞátttaka
3. marsVesturland  15:00-17:00Dagskrá
15. marsSuðurland   10:00-12:00Dagskrá
16. marsNorðurland vestra 10:00-12:00Dagskrá
16. marsNorðurland eystra  13:00-15:00Dagskrá
22. marsVestfirðir 10:00-12:00Dagskrá
22. marsSuðurnes  13:00-15:00Dagskrá
31. marsAusturland 13:00-15:00Dagskrá
9. aprílHöfuðborgarsvæðið 09:00-11:00Dagskrá

Leiðarljós í stefnumótuninni

Ísland er í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tækni tengir byggðir og Ísland við umheiminn í jafnvægi við umhverfið. Til grundvallar stefnumótunarvinnunni eru meginmarkið og leiðarljós allra áætlana samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins: 

Þjónusta samgöngu- og fjarskiptakerfa mæti þörfum samfélagsins

  • Samgöngu- og fjarskiptakerfi mynda samhæfða heild til hagsbóta fyrir einstaklinga og atvinnulíf.
  • Grunnnet samgangna og fjarskipta á landi, í lofti og sjó er skilgreint og byggt upp með hliðsjón m.a. af öryggi, vinnusóknarsvæðum, tengingu landshluta og Íslands við umheiminn. 
  • Samgöngur og fjarskipti geri landsmönnum kleift að nálgast opinbera grunnþjónustu á sem stystum tíma og á öruggan hátt. 
  • Ávallt litið til tækniframfara og nýsköpunar.

Sjálfbærar byggðir um land allt.

  • Við forgangsröðun aðgerða verði tekið tillit til óska sveitarstjórna og sóknaráætlana landshluta.
  • Skipulag og forgangsröðun samgangna og fjarskipta um land allt taki tillit til umhverfisgæða og lýðheilsu.
  • Fjármögnun aðgerða stuðli að sem hagkvæmastri nýtingu opinberra fjármuna.
  • Sjálfstjórn og ábyrgð sveitarfélaga virt og tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum