Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu
Innleiðing Microsoft Copilot efnisyfirlit
Um verkefnið
Unnið er að samræmdri innleiðingu Microsoft Copilot hjá ríkisstofnunum með það að markmiði að efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Verkefnið er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.
Innleiðingin er fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og góðri gagna- og aðgangsstýringu. Áhersla er lögð á að ný verkfæri styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma — en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.
Innleiðing verður stigvaxandi og byggð á þörfum stofnana. Samhliða sem undanfari innleiðingar er unnið að mati á tæknilegu umhverfi, öryggi og gagnastjórnun til að tryggja trausta og ábyrga notkun frá upphafi.
Í tengslum við innleiðinguna verður boðið upp á:
- Grunnfræðslu fyrir alla ríkisstarfsmenn um notkun gervigreindar, öryggi og gagnrýna hugsun
- Hlutverkamiðaða þjálfun fyrir ólíka starfshópa
- Stuðning við breytingastjórnun og upptöku nýrra vinnubragða
Athugið að þessi upplýsingasíða er og verður í þróun samhliða innleiðingu Copilot hjá ríkisaðilum. Allar ábendingar um hvað betur megi fara, hvað megi missa sín og hvað vantar má gjarnan senda á fyrirspurnarformið.