Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu

Unnið er að samræmdri innleiðingu Microsoft Copilot hjá ríkisstofnunum með það að markmiði að efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Verkefnið er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.

Innleiðingin er fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og góðri gagna- og aðgangsstýringu. Áhersla er lögð á að ný verkfæri styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma — en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.

Innleiðing verður stigvaxandi og byggð á þörfum stofnana. Samhliða sem undanfari innleiðingar er unnið að mati á tæknilegu umhverfi, öryggi og gagnastjórnun til að tryggja trausta og ábyrga notkun frá upphafi.

Fræðsla og stuðningur

Í tengslum við innleiðinguna verður boðið upp á:

  • Grunnfræðslu fyrir alla ríkisstarfsmenn um notkun gervigreindar, öryggi og gagnrýna hugsun
  • Hlutverkamiðaða þjálfun fyrir ólíka starfshópa
  • Stuðning við breytingastjórnun og upptöku nýrra vinnubragða.

Sameiginleg þekking og verkfæri

Þessi síða mun þróast áfram samhliða verkefninu og verða miðpunktur upplýsinga fyrir ríkisstarfsmenn. Hér verður m.a. að finna:

  • Tímalína innleiðingarverkefnis fyrir rekstrarumhverfi
  • Upplýsingar um framvindu innleiðingar
  • Svör við algengum spurningum
  • Dagskrá og skráningu á námskeið
    Verkfærakistu fyrir stofnanir, þar á meðal stefnumótunargögn, ávinningsmat og leiðbeiningar
  • Markmið og mælikvarðar
  • … og fleira tilfallandi.

Markmiðið er að byggja upp sameiginlegt lærdómssamfélag þar sem stofnanir deila reynslu og góðum dæmum.

Væntingar og næstu skref

Innleiðing Copilot fer fram í áföngum og verður innleidd í samræmi við undirbúning, þarfir og forgangsröðun stofnana. Nánari upplýsingar um tímasetningar og aðgengi verða birtar hér eftir því sem verkefnið þróast.