
Forsætisráðuneytið
Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg
101 Reykjavík
Afgreiðsla ráðuneytisins í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg er opin virka daga kl. 8.30–16.00.
Forsætisráðuneytið hefur frá upphafi verið í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg þar sem ríkisstjórnin fundar reglulega. Starfsemi á vegum ráðuneytisins fer nú einnig fram í nærliggjandi húsum að Hverfisgötu 4–6. Aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins skiptist samkvæmt skipuriti í skrifstofu yfirstjórnar, skrifstofu stefnumál, skrifstofu löggjafarmála, skrifstofu fjármála og skrifstofu jafnréttismála.
Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru Seðlabanki Íslands, Ríkislögmaður, Hagstofa Íslands, Umboðsmaður barna, Jafnréttisstofa og Óbyggðanefnd.
Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þau varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild, málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn og fleira. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.
- Forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (31.1.2022)
- Lagasafn Alþingis - helstu lög er falla undir ráðuneytið
Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum enda er hann skv. 17. gr. stjórnarskrár „sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis“. Hann fer einnig með forsetavald í fjarveru forseta Íslands, ásamt forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar. Ráðherranefndir starfa undir forystu forsætisráðherra, auk þess sem ýmsar aðrar nefndir, verkefnishópar og ráð heyra undir ráðuneytið.
Fleira um ráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.