Rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir

16. Aðstaða í dómhúsi

Lýsing aðgerðar: Gerðar verða nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að aðbúnaður og skipulag við aðalmeðferð dómstóla um land allt sé með þeim hætti að réttindi þolenda kynbundins ofbeldis séu tryggð.

Markmið aðgerðar: Að tryggja að brotaþolar kynbundins ofbeldis geti gefið skýrslu án þess að sjá ákærða til að takmarka sálrænan skaða brotaþola.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Dómstólasýslan, ríkissaksóknari, ríkislögreglustjóri og Lögmannafélag Íslands.

Tímaáætlun: 2026-2028.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 296 um kerfisbundna beitingu þolendaúrræða sem eru til taks við meðferð dómsmála.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi