Leiðbeiningar, verkferlar og gátlistar
18. Samræmt verklag og verkferlar til að bregðast við kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum
Útbúið verði samræmt sniðmát að verklagi og verkferlum vegna viðbragða við kynferðisofbeldi gegn börnum og ungmennum sem aðlaga megi að þörfum þeirra sem taka á móti þeim í þjónustu eða dvöl. Lögð verði sérstök áhersla á hlutverk stjórnenda og verkferla sem tengist samstarfi við stuðningsþjónustur, skráningu, eftirfylgni og samtali við forsjáraðila. Verklagið verði markvisst kynnt um land allt með rafrænum kynningarfundum.
Markmið: Tryggja samræmt verklag og viðbrögð við kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum.
Mælikvarði: Verklag tilbúið og kynnt eigi síðar en vor 2027.
Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímarammi: 2026–2027.
Á byrjunarstigi