- Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi
Áfallamiðuð nálgun í réttarvörslukerfinu og þarfir kvenna í fangelsum
Starfsfólk Fangelsismálastofnunar fái fræðslu og þjálfun í áfallamiðaðri nálgun til að koma til móts við mismunandi þarfir kvenna og karla sem eru vistuð í fangelsum með það að leiðarljósi að auka öryggi, hvort sem horft er til samskiptahátta, í nærumhverfinu eða þegar út í samfélagið er komið. Sérhæfðir aðilar verði fengnir inn í fangelsin til að sinna innleiðingu á áfallamiðaðri nálgun, fræðslu, þjálfun og framþróun.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu starfsfólks Fangelsismálastofnunar á mismunandi áhrifum og afleiðingum áfalla á kynin svo að hægt sé að skapa umhverfi sem auki öryggistilfinningu þeirra sem eru í fangelsum.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: 4 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Fangelsismálastofnun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 3, einkum 3.5, 4 og 16, einkum 16.1.