Forvarnir

11. Fræðsla um heiðurstengt ofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald gegn konum og stúlkum

Lýsing aðgerðar: Fræðsla um einkenni og birtingarmyndir heiðurstengds ofbeldis og neikvæðs félagslegs taumhalds verður útbúin og henni miðlað til starfsfólks í félagsþjónustu, lögreglu, innan skóla- og frístundasviðs og heilbrigðiskerfisins.

Markmið aðgerðar: Að efla þekkingu á birtingarmyndum heiðurstengds ofbeldis og neikvæðs félagslegs taumhalds.

Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti í samstarfi við dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Dómstólasýslan, Fangelsismálastofnun, Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, Barna- og fjölskyldustofa, 112.is, viðeigandi félagasamtök og Jafnréttisstofa.

Tímaáætlun: 2026.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 77 um þörf á vitundarvakningu um mismunandi tegundir ofbeldis, nr. 94 um mikilvægi þess að fagaðilar búi yfir yfirgripsmikilli þekkingu.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi