1. Kynjuð tölfræði og mælaborð

Þróun mælikvarða í jafnréttismálum

Ýtt verði úr vör tilraunaverkefni um þróun mælikvarða og söfnun gagna til að meta framgang jafnréttismála á Íslandi í tengslum við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018.
    Markmið aðgerðarinnar verði að þróa mælikvarða um jafnrétti.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Hagstofu Íslands.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

Á byrjunarstigi