Efnislegur réttur

19. Öryggi þolenda í forsjár- og umgengismálum

Lýsing aðgerðar: Við stefnumótun og endurskoðun barnalaga nr. 76/2003 og hjúskaparlaga nr. 31/1993 verður höfð hliðsjón af ákvæði 31. gr. Istanbúlsamningsins hvað varðar ákvörðun forsjár- og umgengnisréttar við börn, þar með talið að þolendum sé ekki gert að undirgangast sáttameðferð með gerendum sínum.

Markmið aðgerðar: Að tryggja betur öryggi þolenda ofbeldis og barna við skilnað og sambúðarslit og ákvörðun um forsjá og umgengni.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Sýslumannaráð og dómstólar.

Tímaáætlun: 2026-2028.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 189a um að allir hluteigandi sérfræðingar taki tillit til sögu um ofbeldi við ákvörðun um forsjá eða umgengni, nr. 190 um mat á áhrifum núverandi verklags sýslumanna og dómstóla fyrir þolendur ofbeldis og nr. 239 um sáttamiðlun foreldra þegar saga um ofbeldi er til staðar.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi