Vernd og stuðningur
5. Upplýsingagjöf til þolenda
Lýsing aðgerðar:
Þjónustugátt lögreglu verður þróuð áfram, m.a. þannig að þolendur fleiri tegunda kynbundins ofbeldis geti nýtt sér hana og upplýsingagjöf aukin. Þá verður gáttin tekin í notkun hjá lögreglu á landsvísu svo þolendur um allt land geti nýtt sér hana.
Markmið aðgerðar: Að bæta upplýsingagjöf til þolenda og auka traust þeirra um allt land til lögreglu og ákæruvalds.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Ríkislögreglustjóri, lögregluembættin og héraðssaksóknari.
Tímaáætlun: 2026-2028.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 296 um mikilvægi þess að stjórnvöld beiti þeim þolendamiðuðu úrræðum sem til taks eru með kerfisbundnum og markvissum hætti.
Staða aðgerðar:
Á byrjunarstigi