Eftirfylgni og mat á árangri
23. Mælaborð um framgang aðgerða forvarnaáætlunar
Komið verði upp mælaborði á vefsvæði Stjórnarráðsins með yfirliti aðgerða og upplýsingum um stöðu þeirra og framgang. Mælaborð verði uppfært með reglubundnum hætti.
Markmið: Tryggja yfirsýn yfir stöðu aðgerða innan forvarnaáætlunarinnar.
Mælikvarði: Mælaborð verði birt á vefsvæði dómsmálaráðuneytisins og staða aðgerða verði uppfærð tvisvar á ári.
Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.
Ábyrgðaraðili: Dómsmálaráðuneyti.
Tímarammi: 2026–2030.
Á byrjunarstigi