Almennar aðgerðir

5. Þjónusta og stuðningur við börn og ungmenni í tómstundastarfi

Starfshópur fari yfir löggjöf og kanni hvernig best megi tryggja að öll börn hafi aðgang að þjónustu samskiptaráðgjafa eða sambærilegri þjónustu. Kannað verði hvort þjónusta samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs skuli ná yfir fleiri tegundir tómstunda eða hvort leita þurfi annarra leiða svo tryggja megi að öll börn og ungmenni sem sækja tómstundir geti leitað aðstoðar og stuðnings vegna kynbundins og kynferðislegs ofbeldis og áreitni.

Markmið: Öll börn í tómstundastarfi utan skóla hafi aðgang að sambærilegri þjónustu og samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs býður upp á. 

Mælikvarði: Starfshópur skili ráðherra skýrslu fyrir lok árs 2028. 

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda. 

Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.

Tímarammi: 2026–2028.

Á byrjunarstigi