1. Alþjóðastarf

Aukin kynjasamþætting og efnahagsleg valdefling kvenna í alþjóðaviðskiptum

Unnið verði að því að móta áherslur um áframhaldandi framkvæmd og eftirfylgni með kynjasamþættingu og efnahagslegri valdeflingu kvenna í alþjóðaviðskiptum. Verkefnið feli í sér eftirfarandi þætti:
     a.      Kortlagningu á starfi annarra ríkja varðandi efnahagslega valdeflingu kvenna til að draga lærdóm af hér á landi.
     b.      Greiningu á því hvaða upplýsingar og kyngreindu gögn vanti til þess að móta markmið og mælikvarða.
     c.      Samráð við konur í atvinnulífinu um hvernig megi efla þátttöku kvenna í alþjóðaviðskiptum.
    Markmið verkefnisins verði að kortleggja og greina leiðir til þess að móta áherslur þegar kemur að valdeflingu kvenna í alþjóðaviðskiptum.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 8.

Staða aðgerðar:

Vinna hafin.

Hafið