Skilgreiningar
1. Skilgreining ofbeldis í nánum samböndum
Lýsing aðgerðar: Skoðað verður hvort breyta eigi skilgreiningu 218. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 á ofbeldi í nánum samböndum þannig að hún samræmist betur ákvæði b-liðar 3. gr. Istanbúlsamningsins.
Markmið aðgerðar: Að útvíkka refsivernd þolenda ofbeldis í nánum samböndum í samræmi við kröfur Istanbúlsamningsins.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Saksóknaraembættin og lögregluembættin.
Tímaáætlun: 2026- 2029.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 13 þar sem ofbeldi í nánu sambandi er talið of þröngt skilgreint í 218. gr. b. alm. hgl.
Staða aðgerðar:
Á byrjunarstigi