1. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi

Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni og ofbeldi (EKKO) í framhaldsskólum

Unnið verði að vitundarvakningu um jafnréttismál í framhaldsskólum með eflingu fræðslu og þekkingar á jafnrétti og EKKO-málum.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu á EKKO-málum í framhaldsskólum.

Tímaáætlun: 2026–2028.
Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 4, 5 og 10.

Á byrjunarstigi