Forvarnir

10. Kortlagning á heiðurstengdu ofbeldi og neikvæðu félagslegu taumhaldi gegn konum og stúlkum

Lýsing aðgerðar: Heiðurstengt ofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald gegn stúlkum og konum á Íslandi verður kortlagt. Sérstaklega verður horft til félags- og barnaverndarþjónustunnar, menntakerfisins, frístunda-, íþrótta- og tómstundastarfs og heilbrigðiskerfisins.

Markmið aðgerðar: Að skapa þekkingu á umfangi heiðurstengds ofbeldis og neikvæðs félagslegs taumhalds gegn stúlkum og konum.

Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Barna- og fjölskyldustofa og sveitarfélög.

Tímaáætlun: 2027.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 68 þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til þess að rýna með ítarlegri hætti í þær tegundir ofbeldis sem fá litla athygli hérlendis.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi