Forvarnir
8. Skilorð gerenda ofbeldis í nánum samböndum og kynferðisofbeldis í auknum mæli bundið við meðferð
Lýsing aðgerðar: Haldin verður fræðsla fyrir ákærendur og dómara um bindingu skilorðs við meðferð þegar sakfellt er fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða kynferðisofbeldi. Samhliða því verða settar reglur um eftirlit Fangelsismálastofnunar með framfylgd skilorðsdóma sem bundnir eru sérskilyrðum.
Markmið aðgerðar: Að fyrirbyggja endurtekin ofbeldisbrot gegn konum.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Saksóknaraembættin, dómstólasýslan, Fangelsismálastofnun og viðeigandi meðferðaraðilar.
Tímaáætlun: 2026-2027.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 99(a) um við ákvörðun refsingar sé gerendum ofbeldis vísað í úrræði þegar sakfellt er fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða kynferðisofbeldi.
Staða aðgerðar:
Á byrjunarstigi