1. Jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamunur

Virðismat starfa í þágu launajafnréttis

Unnið verði að þróun og eftirfylgni virðismatskerfis í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga sem gerðir voru í mars 2024. Stýrihópur um virðismat starfa í þágu launajafnréttis stýri vinnu um þróun og innleiðingu kerfisins sem byggist á fyrri tillögum aðgerðahóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. Í samræmi við yfirlýsinguna liggi nýtt kerfi fyrir eigi síðar en í árslok 2026.

Tímaáætlun: 2026.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.4, 5.5, 5.a, 5.c, 8.7, 8.8, 10.3 og 10.4.

Staða aðgerðar:

Stýrihópur um virðismat starfa hefur yfirumsjón með þróun virðismatskerfis starfa í þágu launajafnréttis. Fagleg stjórn virðismatskerfisins vinnur að nánari útfærslu kerfisins í samvinnu við sérfræðinga Jafnlaunastofu. Kjarni verkefnisins felst í því að fá starfsfólk og aðra viðeigandi aðila til að greina tiltekin störf í þeim tilgangi að hægt sé að meta virði starfanna og annarra starfa með hliðsjón af þeim. Áhersla er lögð að meta með sanngjörnum hætti virði hefðbundinna kvennastarfa.  Stefnt er að því að vinnu við kerfið verði lokið í upphafi árs 2027. 

Komið vel á veg