Almennar aðgerðir

7. Netnámskeið fyrir starfsfólk sem vinnur með börnum undir tveggja ára aldri

Þróað verði fræðsluefni með grunnfræðslu um eðli og afleiðingar kynferðislegs og kynbundins ofbeldis gagnvart börnum undir tveggja ára aldri. Efnið byggi á gagnreyndri þekkingu um þroska barna og aðferðum til að bregðast við þegar grunur vaknar um kynferðisofbeldi gegn ungum börnum. Efnið verði hluti af netnámskeiðum Barna- og fjölskyldustofu fyrir starfsfólk sem vinnur með börnum og ungmennum.

Markmið: Efla þekkingu og hæfni starfsfólks sem vinnur með börnum yngri en tveggja ára, til að þekkja merki um ofbeldi og bregðast við á faglegan hátt.

Mælikvarði: Námskeiðið verði aðgengilegt á fyrsta ársfjórðungi 2027 sem viðbót við núverandi netnámskeið Barna- og fjölskyldustofu.

Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.

Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti. 

Tímarammi: 2026–2027.

Á byrjunarstigi