Vernd og stuðningur

6. Skýrari umgjörð réttargæslu

Lýsing aðgerðar:

Samdar verða ítarlegar leiðbeiningar fyrir lögmenn sem taka að sér réttargæslu brotaþola kynbundins ofbeldis og þeim veitt fræðsla.

Markmið aðgerðar: efla þekkingu réttargæslumanna og styrkja þannig gæði þjónustu þeirra við brotaþola kynbundins ofbeldis.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Lögmannafélagið, ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri.

Tímaáætlun: 2026-2028.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 297 um að þjónusta réttargæslumanna sé misjöfn að gæðum.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi