Fræðsla
16. Kynningar og upplýsingagjöf til almennings og fagfólks
Á gildistíma forvarnaáætlunar verði reglulega vakin athygli á málefninu, m.a. með kynningum og miðlun á afrakstri aðgerða, auk kynninga á því efni sem til er varðandi úrræði, fræðsluefni, leiðbeiningar og annað efni um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum. Unnið verði með viðeigandi stofnunum og félagasamtökum og sérstök áhersla lögð á að koma á framfæri efni sem ætlað er að styðja foreldra barna og ungmenna.
Markmið: Auka þekkingu almennings og fagfólks á forvörnum og viðbrögðum við kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi. -
Mælikvarði: Áhorf á rafrænt kynningarefni.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgðaraðili: Dómsmálaráðuneyti.
Tímarammi: 2026–2030.
Á byrjunarstigi