1. Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi

Karlar og kynbundið ofbeldi

Skipaður verði starfshópur um karla og jafnrétti sem skoði sérstaklega hlutverk karla í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Verkefnið taki m.a. til sambandsins milli kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis annars vegar og hugmynda um karlmennsku, mörk og samþykki hins vegar. Starfshópurinn taki mið af samþykktum leiðbeiningum Evrópuráðsins um hlutverk karla og drengja í jafnréttismálum og forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi.
    Markmið aðgerðarinnar verði að finna leiðir til að virkja karla frekar í baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi.

Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisstofu og aðra hagaðila.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 3, 4, 5, einkum 5.2, og 16, einkum 16.1.

Á byrjunarstigi