- Kynjuð tölfræði og mælaborð
Mælaborð um jafnrétti á sveitarstjórnarstigi
Þróað verði mælaborð fyrir tölfræði á sviði jafnréttismála á sveitarstjórnarstigi í anda sambærilegs Evrópuverkefnis. Mælaborðið feli í sér myndræna framsetningu á breytum eins og hlutfalli kynjanna í sveitarstjórnum, nefndum og ráðum, og á upplýsingum um hlutfall sveitarfélaga með jafnlaunavottun og jafnréttisáætlanir, svo dæmi séu nefnd. Mælaborðið verði sérstaklega kynnt fyrir sveitarstjórnum í því skyni að mynda grundvöll til aðgerða sem stuðli að auknu jafnrétti.
Markmið aðgerðarinnar verði að stuðla að auknu jafnrétti innan sveitarfélaga.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Jafnréttisstofu og Hagstofu Íslands.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.
Staða aðgerðar:
Vinna komin vel á veg.