Efnislegur réttur

21. Þyngri refsingar fyrir vændiskaup og nafngreining gerenda

Lýsing aðgerðar: Unnið verður að breytingum á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt. Einnig verður skoðað hvort rétt sé að gera breytingar á lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008 til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál fara fyrir dómstóla og gæta betur að réttindum seljenda vændis.

Markmið aðgerðar: Að auka fælingarmátt vændiskaupabrota og þar með draga úr eftirspurn eftir vændi og mansali í kynferðislegum tilgangi.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Ríkislögreglustjóri.

Tímaáætlun: 2026.

Tilefni: Sambærileg breyting á sænskum hegningarlögum frá árinu 2022.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi