1. Kyn, áhrif og þátttaka

Framkvæmdasjóður kynjajafnréttismála

Á tímabilinu 2026–2029 verði verkefni úr þessari framkvæmdaáætlun styrkt. Um verði að ræða samstarfsverkefni ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands eða ráðuneyta og ríkisstofnana, félagasamtaka eða háskólasamfélagsins þar sem tilgangurinn sé að nýta niðurstöður, reynslu og þekkingu á sviði jafnréttismála eða innleiða tillögur sem megi telja til afraksturs aðgerða í þessari framkvæmdaáætlun.

Dómsmálaráðuneytið auglýsi eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti styrkjum að undangengnu faglegu mati skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála.

Tímaáætlun: 2026–2029. Kostnaðaráætlun: 48 millj. kr.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 5 og samþætting þess við önnur heimsmarkmið. 

Staða aðgerðar:

Úthlutun úr framkvæmdasjóði kynjajafnréttismála árið 2026 komin vel á veg.

Komið vel á veg