3. Samræmt verklag í heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum
Lýsing aðgerðar:
Innleitt verður verklag þverfaglegs starfshóps byggt á skýrslu um heilsufar og heilbrigðisþjónustu frá 2021 á öllum heilbrigðisstofnunum landsins. Allir heilbrigðisstarfsmenn sem koma að þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis muni starfa samkvæmt skýrum verklagsreglum þar sem m.a. sé ljóst í hvaða þjónustu skuli vísa sjúklingi. Liður í verklaginu er notkun skráningarforms þar sem upplýsingar um mál um ofbeldi í nánu sambandi verða skráðar á einn stað í sjúkraskrárkerfinu.
Markmið aðgerðar: Að tryggja að allir þolendur kynbundins ofbeldis hljóti sambærilega þjónustu og verði vísað í viðeigandi úrræði af hálfu heilbrigðisstofnana.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Heilbrigðisstofnanir á Íslandi.
Tímaáætlun: 2026.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 112 og 131 um mikilvægi þverfaglegrar samvinnu og nr. 113 um nauðsyn skýrra verkferla þar að lútandi. Einnig niðurstöður skýrslunnar Heilsufar og heilbrigðisþjónusta: kynja- og jafnréttissjónarmið frá árinu 2021.
Staða aðgerðar: