Efnislegur réttur
20. Bann við þvinguðum ófrjósemisaðgerðum
Lýsing aðgerðar: Skoðað verður hvort gera eigi ófrjósemisaðgerðir án upplýsts samþykkis refsinæmar í almennum hegningarlögum.
Markmið aðgerðar: Að tryggja réttarvernd kvenna, einkum fatlaðra kvenna, gegn þvinguðum ófrjósemisaðgerðum.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Heilbrigðisráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti og refsiréttarnefnd.
Tímaáætlun: 2027-2028.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 222 um að þvingaðar ófrjósemisaðgerðir séu með skýrum hætti lýstar refsiverðar.
Staða aðgerðar:
Á byrjunarstigi