1. Jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamunur

Meðganga og fæðingarorlof

Unnin verði heildstæð greining á töku veikindaréttar á síðari hluta meðgöngu, einkum síðustu 4–8 vikum meðgöngu, nýtingu réttar til fæðingarorlofs eftir kynjum og endurkomu foreldra á vinnumarkað.

Greiningin taki mið af þróun síðustu 20 ára og beini sjónum að þeim samfélagslegu, efnahagslegu og vinnumarkaðstengdu þáttum sem hafa áhrif á ákvarðanir foreldra og stöðu kynjanna í kjölfar meðgöngu og fæðingarorlofs.

    Markmið aðgerðarinnar verði að meta áhrif meðgöngu og fæðingarorlofs á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og leggja mat á áhrif þessa á jafnrétti kynjanna á Íslandi.

Tímaáætlun: 2026.
Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið í samstarfi við dómsmálaráðuneytið, Hagstofu Íslands og Háskóla Íslands.

 

Á byrjunarstigi