- Kyn, áhrif og þátttaka
Jafnrétti og gervigreind
Samhliða stefnumótun og undirbúningi lagasetningar stjórnvalda um gervigreind verði áhrif þessarar tæknibyltingar á jafnréttismál metin og greind, bæði tækifæri sem felast í tækninni og áskoranir vegna hennar.
Unnin verði úttekt þar sem litið verði til mögulegra áhrifa gervigreindar á jafnrétti á breiðum grundvelli. Markmið úttektar verði að auka getu hins opinbera til að takast á við hættu á hlutdrægni og mismunun í ákvarðanatöku sem byggjast á eða hagnýta gervigreind og benda stjórnvöldum á leiðir til úrbóta. Þar sem gervigreindartækni er í stöðugri þróun verði verkefninu skipt í tvo hluta:
a. Yfirlit á breiðum grundvelli.
b. Sérstakar tillögur til stjórnvalda.
Markmið aðgerðarinnar verði að meta áhrif gervigreindar á jafnrétti.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisstofu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.b.
Staða aðgerðar:
Undirbúningur hafin.