Almennar aðgerðir
8. Miðlægur gagnagrunnur um þátttöku starfsfólks í netnámskeiðum
Komið verði upp miðlægum gagnagrunni sem skráir þátttöku starfsfólks á netnámskeiðum Barna- og fjölskyldustofu fyrir starfsfólk sem vinnur með börnum og ungmennum til að greina megi hlutfall starfsfólks sem lokið hefur námskeiðum eftir því hvar það starfar.
Markmið: Tryggja marktæka skráningu á fræðslu starfsfólks sem starfar með börnum og ungmennum.
Mælikvarði: Miðlægur gagnagrunnur verði virkur á fyrsta ársfjórðungi 2027. -
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr. á ársgrundvelli.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti. -
Tímarammi: 2026–2027.
Á byrjunarstigi