12. Námskeið um tengsl milli öfgahyggju og kynbundins ofbeldis
Útbúið verði netnámskeið fyrir skólastjórnendur, kennara og starfsfólk í skólaog frístundastarfi um tengsl milli kynbundins ofbeldis og öfgahyggju, skautunar og hatursorðræðu. Námskeiðinu verði ætlað að styðja starfsfólk sem vinnur með börnum í að ræða við þau um hvernig kynbundið ofbeldi og ofbeldi gegn jaðarsettum hópum tengist öfgahyggju og hatursorðræðu. Í kjölfarið geti starfsfólk í skóla- og frístundastarfi bæði borið kennsl á orðræðu sem ýti undir kynbundið ofbeldi og nýtt viðurkenndar aðferðir til þess að takast á við þá orðræðu í skóla- og frístundastarfi.
Markmið: Auka þekkingu starfsfólks skóla- og frístundastarfs á samhengi öfgahyggju, hatursorðræðu, skautunar, kvenfyrirlitningar og kynbundins og kynferðislegs ofbeldis.
Mælikvarði: Fjöldi starfsfólks sem hefur horft á námskeiðið og könnun meðal starfsfólks þess í kjölfarið.
Kostnaðaráætlun: 4 millj. kr. á ársgrundvelli.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímarammi: 2027–2028.