Leiðbeiningar, verkferlar og gátlistar

19. Gátlistar fyrir öll skólastig á heilsueflandi.is

Útbúnir verði sérstakir gátlistar um hlutverk og ábyrgð leik-, grunn- og framhaldsskóla á því að koma í veg fyrir og tilkynna kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þar á meðal stafrænt ofbeldi, m.a. með markvissri þjálfun og fræðslu starfsfólks.

Markmið: Skýra hlutverk og ábyrgð leik-, grunn- og framhaldsskóla þegar kemur að forvörnum, þekkingu og tilkynningum vegna kynbundins og kynferðislegs ofbeldis gegn börnum. 

Mælikvarði: Gátlistar hafi verið birtir á vef heilsueflandi.is fyrir lok árs 2026 og lokið verði við rafrænar kynningar fyrir öll skólastig fyrir lok árs 2027.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda. 

Ábyrgðaraðili: Heilbrigðisráðuneyti í samstarfi við Embætti landlæknis. 

Tímarammi: 2026–2027.

Á byrjunarstigi