Vernd og stuðningur

2. Kortlagning á samræmdum verkferlum og leiðbeiningum

Lýsing aðgerðar: Tryggt verður að verkferlar fyrir þá sem koma að þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis, þ.m.t. lögreglu, félagsmálayfirvöld og barnaverndarþjónustu, nái til allra tegunda kynbundins ofbeldis sem Istanbúlsamningurinn nær til.

Markmið aðgerðar: Að bregðast við öllum birtingarmyndum ofbeldis gegn konum á skjótan og árangursríkan hátt og eftir atvikum taka ákvarðanir um nauðsynlegar úrbætur, samræmingu og ábyrgðarsvið.

ÁbyrgðDómsmálaráðuneyti í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Ríkissaksóknari, ríkislögreglustjóri, lögregluembætti,  heilbrigðisyfirvöld, sveitarfélög og frjáls félagasamtök eftir atvikum.

Tímaáætlun: 2026-2030.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 94 um leiðbeiningar og skýra verkferla í allri þjónustu við þolendur, nr. 249 um mikilvægi fræðslu til löggæslufulltrúa, nr. 112 og 131 um mikilvægi þverfaglegrar samvinnu og nr. 113 um nauðsyn skýrra verkferla þar að lútandi.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi