1. Alþjóðastarf

Fjórða landsáætlun Íslands um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi

Unnið verði markvisst að framkvæmd og kynningu á fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi 2025–2030. Verkefnið byggist á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 frá árinu 2000 og tengdum ályktunum sem kveða m.a. á um framlag kvenna til öryggis og friðar í heiminum.
    Markmið verkefnisins verði að vinna að framfylgd ályktana öryggisráðsins með markvissri framkvæmd aðgerða í fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 16.

Staða aðgerðar:

Vinna komin vel á veg, framkvæmd aðgerða 2026 í góðum farvegi.

Komið vel á veg