Forvarnir

7. Fræðsla innan réttarvörslukerfisins um kynbundið ofbeldi gegn konum

Lýsing aðgerðar:

Tryggð verður fræðsla meðal starfsfólks lögreglu, ákærenda, dómstóla og sýslumanna um birtingarmyndir og afleiðingar kynbundins ofbeldis gegn konum.

Markmið aðgerðar: Að efla getu réttarvörslukerfisins til að taka á kynbundnu ofbeldi gegn konum.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Ríkislögreglustjóri, ríkissaksóknari, dómstólasýslan og sýslumannaráð.

Tímaáætlun: 2027-2028

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 94 sem kalla eftir fræðslu og þekkingarmiðlunar til fagstétta sem koma að ofbeldismálum, einkum innan réttarvörslukerfisins.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi