Rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir

14. Kvennamorð

Lýsing aðgerðar: Skoðað verði að koma á fót einhvers konar kerfi og eða breyttu verklagi sem feli í sér að kvennamorð verði rannsökuð og greind sérstaklega með það að markmiði að greina helstu orsakaþætti kvennamorða og hugsanlega kerfisgalla.

Markmið aðgerðar: Að koma í veg fyrir kvennamorð og auka öryggi kvenna með því að efla og bæta viðbragð löggæslu, félagsmálayfirvalda og heilbrigðiskerfisins.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Ríkislögreglustjóri.

Tímaáætlun: 2027-2028.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 275 um nauðsyn þess að koma í veg fyrir kvennamorð.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi